Reynir Sandgerði rótburstaði Álftanes í 2. deild karla í körfuknattleik á mánudagskvöld 49-99 á Álftanesi. Leikurinn var jafn framan af fyrsta leikhluta en undir lok hans sigu gestirnir úr Sandgerði framúr. Þeir stungu af í öðrum leikhluta og juku forskot sitt meðan Álftnesingar sáu aldrei til sólar.
Sandgerðingar beittu oft pressuvörn en yfirleitt gekk heimamönnum vel að leysa hana. En þótt þeir leystu hana og fengu ágætis færi hittu þeir ekki úr þeim. „Nýting okkar úr tveggja stiga skotum var undir 40% og rétt um 10% nýting úr þriggja stiga skotum,“ segir Gísli Sigurðarson,
þjálfari Álftaness.
Sandgerðingar spiluðu á móti oft fínasta sóknarleik og hittu úr sínum færum. Þegar leið á leikinn fór staðan í skapið á heimamönnum sem nældu sér í tvær tæknivillur.
„Við mættum ofjörlum okkar á sama tíma og enginn steig upp hjá okkur. Þá erum við auðveld bráð,“ sagði Gísli.
Frosti Sigurðsson var stigahæstur heimamanna með tíu stig.
GG




