HomeFréttirBesta byrjun í sögu Hamars: Ekki annað hægt en að vera ánægður

Besta byrjun í sögu Hamars: Ekki annað hægt en að vera ánægður

 
Topplið Hamars vann í kvöld sinn tíunda deildarsigur í röð í Iceland Express deild kvenna og bætti þar með enn ofan á bestu byrjun í sögu félagsins í efstu deildinni. Að þessu sinni voru það bikarmeistarar Hauka sem lágu í valnum 73-81. Karfan.is ræddi við Ágúst Björgvinsson þjálfara Hamars um gott gengi liðsins.
,,Þetta var hörku leikur í kvöld enda Haukar með góðan mannskap og fengu til sín í sumar fjóra leikmenn úr byrjunarliðum annars staðar frá. Þær eru ríkjandi bikarmeistarar með gríðarlega sterkan hóp svo við erum sátt,” sagði Ágúst sem bætt hefur ofan á bestu byrjun Hamars með hverjum leik síðan Hvergerðingar unnu Keflavík á útivelli í deildinni.
 
,,Það er ekki annað hægt en að vera ánægður á meðan liðið vinnur en ég er mjög rólegur yfir þessu, ég geri mér grein fyrir því að við erum ekki búin að vinna neitt ennþá en það er það sem við stefnum á að gera. Okkur langar að vinna og það hjálpar að vinna sem flesta leiki í röð en út á það gengur keppnin ekki,” sagði Ágúst og sama hvernig fer í síðasta deildarleik fyrir jól sem er gegn Grindavík þá verður Hamar á toppnum yfir hátíðarnar.
 
,,Það er jákvætt að vera á toppnum um jólin, við ætlum að fara í jólafrí með sigur í síðasta leik og hugsum nú um það eitt.”
 
Fréttir
- Auglýsing -