HomeFréttirLeikir dagsins: Verða jólin súr eða sæt?

Leikir dagsins: Verða jólin súr eða sæt?

 
Þá er komið að elleftu og síðustu umferðinni í Iceland Express deild karla en heil umferð er á boðstólunum í kvöld þar sem þrír leikir verða í beinni netútsendingu. Allir hefjast leikirnir kl. 19:15 og stórslagir kvöldsins eru Grindavík-Keflavík og Snæfell-KR. Sama hvað raular og tautar eftir leiki kvöldsins eru það samt margfaldir meistarar Snæfells sem verða á toppnum um jólin.
Leikir kvöldsins í IEX karla:
 
Grindavík-Keflavík
Tindastóll-Njarðvík (í beinni á netinu á tindastoll.is)
ÍR-Fjölnir
Snæfell-KR
Stjarnan-Hamar (í beinni á netinu á 210.is)
KFÍ-Haukar (í beinni á netinu á kfi.is)
 
Grindavík-Keflavík
Með sigri í kvöld getur Keflavík jafnað Grindavík að stigum en gulir eru í 2. sæti deildarinnar núna með 16 stig en Keflavík hefur 14 stig í 3. sætinu. Grindavík hefur unnið fjóra heimaleiki í röð en Keflvíkingar hafa unnið síðustu sex deildarviðureignir sínar og má búast við miklum slag í Röstinni í kvöld.
 
Tindastóll-Njarðvík
Njarðvíkingar hafa verið að vakna til lífsins undanfarið sem og Stólarnir en tvö stig skilja liðin að í deildinni, Njarðvík með 8 í 8. sæti en Tindastóll með 6 í 10. sæti. Stólarnir lágu í Keflavík með naumindum í síðustu umferð en Njarðvíkingar höfðu heimasigur á KFÍ.
 
ÍR-Fjölnir
ÍR er á botni deildarinnar ásamt KFÍ en bæði lið hafa fjögur stig, bæði ÍR og Fjölnir töpuðu í síðustu umferð og freista þess að næla sér í tvö góð stig í þessum síðasta leik þeirra á árinu. Um þessar mundir er Fjölnir í 7. sæti deildarinnar með 8 stiga.
 
Snæfell-KR
Rimmur þessara liða voru frábærar á síðustu leiktíð og ættu ekki að vera nein undantekning að þessu sinni, Snæfell veðrur á toppnum um jólin sama hver úrslit kvöldsins verða en KR á möguleika á því að komast nærri en Vesturbæingar eru í augnablikinu í 4. sæti deildarinnar með 14 stig. Snæfell er á toppnum með 18.
 
Stjarnan-Hamar
Bæði Stjarnan og Hamar hafa tapað síðustu tveimur deildarleikjum sínum svo það mæta hungraði menn inn á parketið í Ásgarði í kvöld. Stjarnan er í 5. sæti deildarinnar með 10 stig en Hamar í því sjötta með jafn mörg stig.
 
KFÍ-Haukar
Nýliðar KFÍ hafa tapað síðustu sjö deildarleikjum í röð og munu næsta víst ekki selja sig ódýrt í Jakanum í kvöld. Haukar lönduðu sigri í síðustu umferð og eru þessa stundina í 9. sæti með 8 stig.
 
 
Fjölmennum á völlinn á síðustu leiki Iceland Express deildar karla árið 2010
 
Fréttir
- Auglýsing -