HomeFréttirÁætlað að Jón verði frá næstu tvo mánuði

Áætlað að Jón verði frá næstu tvo mánuði

 
Fyrr í dag greindum við frá því að Jón Arnór Stefánsson hefði farið meiddur af velli í gær þegar CB Granada tapaði gegn Valladolid í spænsku ACB úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Jón lét líta á meiðsli sín í dag og í ljós kom að hugsanlega verður hann frá næstu tvo mánuðina.
Samkvæmt því sem lesa má úr frétt á heimasíðu CB Granada reif Jón liðþófa og teygði á krossbandinu í fætinum og því búist við að hann þurfi að vera um tvo mánuði frá leik. Ekki verður framkvæmd aðgerð útaf meiðslunum og því hægt að segja að betur hafi farið en á horfðist í upphafi.
 
Áfallið er töluvert fyrir CB Granada sem er í botnslag deildarinnar en Jón hefur jafnan verið mættur til taks þegar syrt hefur í álinn og þá jafnan lamið liðsmenn sína áfram en á því verður nú hlé.
 
Fréttir
- Auglýsing -