Á gamlársdag var kynnt hverjir voru íþróttamenn Grindavíkur fyrir árið 2010. Helga Hallgrímsdóttir, leikmaður Grindavíkur í Iceland Exress-deild kvenna, var kjörinn íþrótta kona Grindavíkur fyrir árið 2010.
Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn Jósefsson, var valinn íþróttamaður Grindavíkur.
Helga er einn mikilvægasti leikmaður Grindavíkur liðsins en turninn stóri er einn öflugasti frákastari landsins.
Mörg önnur verðlaun voru veitt á hófinu en þau Páll Axel Vilbergsson, Guðlaugur Eyjólfsson, Berglind Anna Magnúsdóttir frá UMFG og Bergvin Ólafsson frá ÍG voru í kjörinu til íþróttafólks Grindavíkur árið 2010.
Sjá fréttina á vef Grindavíkur hér.
Mynd: Helga ásamt Jósefi og Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra Grindavíkur – www.grindavik.is




