Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur hefur ákveðið að Jeremey Kelly spili ekki með liðinu eftir áramót. Kelly sem meiddist í síðasta leik á móti Keflavík var ekki orðin góður af meiðslunum og var því ákveðið að hefja leit að nýjum leikmanni. www.umfg.is greinir frá.
Á heimasíðu Grindavíkur segir:
Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar óskar Jeremey alls hins besta í lífinu, enda góður drengur þar á ferð. Samið hefur verið við nýjan leikmann Brock Gillespie sem spilaði í Þýskalandi fyrir áramót.
Mynd/ Brock Gillespie




