Íslandsmeistarar KR hafa ráðið til sín bandarískan leikmann að nafni Chazny Morris. Hrafn Kristjánsson þjálfari KR kvenna staðfesti þetta í samtali við Karfan.is. Hingað til hefur KR verið eina lið deildarinnar án erlends leikmanns og sitja um þessar mundir í 3. sæti deildarinnar. Signý Hermannsdóttir er komin aftur í gang og Bandaríkjamaður væntanlegur svo hugsanlega gæti KR farið að ógna yfirburðum Keflavíkur og Hamars í deildinni.
,,Ég er að fá inn leikmann sem ég bind vonir við að geti leyst stöður 1-4 á vellinum, allar stöður fyrir utan miðherjastöðuna,” sagði Hrafn í samtali við Karfan.is en vonast til að Morris geti verið með annað kvöld í stórslagnum gegn Hamri kl. 19:15 í DHL-Höllinni.
,,Ég vil meina að við getum unnið hvaða lið sem er ef við spilum okkar varnarleik, sigrarnir þurfa ekki að vera fallegir á meðan við erum að púsla saman liðinu,” sagði Hrafn sem býst við því að Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir verði með annað kvöld gegn Hamri en þær hafa verið að glíma við smávægileg meiðsli undanfarið.
Af Chazny Morris er það að segja að hún er 22 ára og kemur frá UMKC skólanum og lék þar sem bakvörður. Skólaárið 2009-2010 sem var hennar síðasta hjá UMKC var Morris með 16,3 stig að meðaltali í leik en hún gerði 1791 stig á þeim fjórum árum sem hún lék fyrir skólann.
Þá er Morris ekki eina viðbótin í Vesturbænum þar sem þær Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir og Svandís Anna Sigurðardóttir hafa ákveðið að yfirgefa Stjörnuna í 1. deild kvenna og ganga til liðs við KR.




