Í nótt fóru sex leikir fram í NBA deildinni þar sem Flórídaliðin Miami Heat og Orlando Magic unnu sína sjöttu leiki í röð. Orlando vann Golden State á heimavelli og Miami gerðu góða ferð til Charlotte.
Charlotte 82-96 Miami
LeBron James skoraði 38 stig í leiknum fyrir Heat en það er það mesta sem hann hefur sett í leik þetta tímabilið. Hann var einnig með 9 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Bobcats var Stephen Jackson með 22 stig og 5 stoðsendingar.
Orlando 110-90 Golden State
Tyrkinn Hedo Turkoglu landaði þrennu hjá Magic með 10 stig, 10 stoðsendingar og 14 fráköst. Stigahæstur í sigurliði Orlando var Dwight Howard með 22 stig og 17 fráköst. Í tapliði Warriors var Monta Ellis með 20 stig og 7 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
Boston 96-93 Minnesota
New Orleans 84-77 Philadelphia
Denver 113-106 Houston
Uta 102-97 Detroit
Mynd/ Howard og félagar í Orlando hafa unnið sex deildarleiki í röð.




