Ágúst Sigurður Björgvinsson var í dag valinn besti þjálfarinn í fyrri hluta Iceland Express deildar kvenna. Ágúst stýrði Hamarskonum ósigruðum inn í jólafrí sem er besti árangur í sögu félagsins og stendur enn yfir. Í kvöld bíður Hamars mikið verkefni þegar liðið mætir í fyrsta sinn í DHL-Höllina síðan það lá í oddaleik gegn KR í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð.
Í viðtali við Karfan TV kvað Ágúst sjálfan sig og sína leikmenn róleg en ánægð með árangurinn sem liðið hefur náð í deildinni til þessa.
Mynd/ Ágúst og Jaleese Butler, besti þjálfarinn og besti leikmaðurinn í fyrri umferð Iceland Express deildar kvenna 2010-2011.




