spot_img
HomeFréttirTólf í röð hjá Hamri: Sigur í öðrum spennuslag

Tólf í röð hjá Hamri: Sigur í öðrum spennuslag

 
Annar spennuslagur var á boðstólunum í kvöld þegar KR og Hamar mættust í Iceland Express deild kvenna en þessi lið léku einmitt til úrslit um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Í fyrri deildarviðureign liðanna vann Hamar á flautukörfu og það var viðlíka spenna uppi á teningnum í kvöld þar sem Hamar hafði á ný sigur og nú 55-57 eftir taugatrekkjandi lokasprett. Konurnar úr Blómabænum er því enn óhreyfðar á toppi deildarinnar með 12 deildarsigra í röð og félagsmet Hamars heldur áfram að vaxa og dafna en liðið er á sinni bestu byrjun í sögu félagsins.
Meistarar KR hófu leikinn á afturfótunum og það nýtti topplið Hamars sér og komst í 0-5. Hafrún Hálfdánardóttir fyrrum leikmaður Hamars gerði svo fyrstu stig KR í leiknum af vítalínunni og þar með brenndu KR-ingar af sjö fyrstu skotunum sínum.
 
Óhætt er að segja að varnarleikurinn hafi ráðið ríkjum því staðan að loknum fyrsta leikhluta var 9-12 Hamri í vil. KR jafnaði metin í 7-7 en þá kom 5-0 rispa hjá Hamri og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir lokaði leikhlutanum og minnkaði muninn í 9-12 eftir stoðsendingu frá nýja leikmanninum Chazny Morris, stoðsending hjá þeirri bandarísku í fyrstu snertingu.
 
KR gerði fyrstu sex stigin í öðrum leikhluta og leiddu 15-12 þegar Ágúst Björgvinsson tók leikhlé fyrir Hamar. Gestirnir svöruðu með 4-0 áhlaupi eftir leikhléið og staðan 15-16 Hamri í vil þegar töluverð harka færðist í leikinn.
 
Guðrún Gróa sá annan leikhluta af KR bekknum þar sem hún fékk sína þriðju villu á fyrstu sekúndum annars leikhluta. Leikhlutinn var eins og gefur að skilja umtalsvert líflegri en sá fyrsti og Chazny Morris fann sig vel í KR liðinu og var þeirra stigahæst með 8 stig og 2 stoðsendingar í hálfleik.

 
Margrét Kara Sturludóttir fékk einnig sína þriðju villu þegar dæmd var á hana óíþróttamannsleg villa fyrir að ryðja sér með látum í gegnum hindrun Hamars. Gestirnir nýttu sér meðbyrinn og komust í 22-31 þar sem Slavica Dimovska gerði 5 stig í röð. KR átti þó lokaorðið og staðan 25-31 í leikhléi.
 
Jaleesa Butler var með 10 stig og 5 fráköst hjá Hamri í hálfleik og Chazny Morris eins og áður greinir með 8 stig og 2 stoðsendingar.
 
KR jafnaði leikinn fljótt í 31-31 í síðari hálfleik með 6-0 áhlaupi en fengu svo goldið í sömu mynt þegar Hamar tók á rás og breytti stöðunni í 31-39. Töluverðar sviptingar en Margrét Kara vaknaði í liði KR og minnkaði muninn í 36-41 með þriggja stiga körfu. Kara var skömmu síðar á ferðinni og kom KR í 42-41 með öðrum þrist en þá kom upp einkennismerki Vesturbæinga í leiknum, einbeitingarleysi. Fyrir þau afhroð refsaði Hamar grimmilega, á lokasekúndum leikhlutans grýttu KR-ingar boltanum nokkrum sinnum frá sér og lentu 42-47 undir fyrir lokasprettinn. Eljusemin í fyrirrúmi hjá Hamarskonum þar sem hin eitraða Slavica fór fyrir sveit refsivandanna.
 
Fanney Guðmundsdóttir opnaði fjórða leikhluta með sterkum þrist, breytti stöðunni í 42-52 Hamri í vil en KR gafst þó ekki upp. Smátt og smátt tókst KR að klóra sig nærri og þegar leið á leikhlutann varð lengra á milli stiganna, harkan meiri og mistökin afdrifaríkari. Í stöðunni 49-54 kom KR með áhlaup.
 
Helga Einarsdóttir minnkaði muninn í 51-54 eftir sóknarfrákast, Hafrún skoraði í teignum skömmu síðar og staðan 53-54 og þegar 55 sekúnur voru til leiksloka skoraði Chazny Morris hægra megin af endalínu og kom KR yfir 55-54 og Hamar tók leikhlé.
 
Guðbjörg Sverrisdóttir gerði næstu stig Hamars og breytti stöðunni í 55-56 er hún barði sér leið upp að körfu KR. Lokaspretturinn var svo æsispennandi, Hamar brenndi upp skotklukku KR, heimakonur misstu boltann sem og KR er þær voru á leið í sókn og restuðu með að brjóta á Fanney Guðmundsdóttur sem brenndi af báðum vítunum. KR náði frákastinu og freistaði þess að bruna upp völlinn til að stela leiknum en liprir varnarmenn Hamars komust í boltann svo KR varð að brjóta aftur á Fanney sem skoraði úr öðru vítinu, því seinna og KR átti innkast þegar 0,42 sekúndur voru til leiksloka, það var of naumur tími til athafna og því fagnaði Hamar öðrum spennusigri á KR þessa leiktíðina, lokatölur 55-57 Hamar í vil.
 
Heildarskor:
 
KR: Margrét Kara Sturludóttir 14/7 fráköst, Chazny Paige Morris 13, Signý Hermannsdóttir 8, Hafrún Hálfdánardóttir 7/8 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 6/6 fráköst/5 stolnir, Hildur Sigurðardóttir 3/12 fráköst/5 stoðsendingar, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 2, Helga Einarsdóttir 2/10 fráköst, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 0, Aðalheiður Ragna Óladóttir 0, Helga Hrund Friðriksdóttir 0, Ingunn Erla Kristjánsdóttir 0.
 
Hamar: Jaleesa Butler 20/9 fráköst/4 varin skot, Slavica Dimovska 14/5 fráköst/6 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 9/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 7/5 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 5/6 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 2, Kristrún Rut Antonsdóttir 0, Jenný Harðardóttir 0, Rannveig Reynisdóttir 0, Regína Ösp Guðmundsdóttir 0, Adda María Óttarsdóttir 0, Bylgja Sif Jónsdóttir 0.
 
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Jón Guðmundsson
 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski: Slavica var skeinuhætt í kvöld með 14 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst.
 
Fréttir
- Auglýsing -