spot_img
HomeFréttirStjörnuleikur kvenna: Netkosningin hafin

Stjörnuleikur kvenna: Netkosningin hafin

 
Laugardaginn 15. janúar fer Stjörnuleikur kvenna fram í Ásgarði í Garðabæ. Af því tilefni er nú hafin netkosning á heimasíðu KKÍ þar sem aðdáendur geta valið þá fimm leikmenn sem hefja leikinn fyrir liðin sem mætast.
 
Lið Reykjaness, skipað leikmönnum úr Grindavík, Haukum, Keflavík og Njarðvík leikur gegn liði Landsins skipuðu leikmönnum úr Fjölni, Hamar, KR og Snæfell.
 
Þjálfarar liðanna verða þeir Jón Halldór Eðvaldsson, Keflavík, og Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfari Hamars, en þeir eru efstu þjálfararnir í deildinni um áramótin.
 
Netkosningin ákvarðar fyrstu fimm leikmenn liðsins og þær sem munu byrja inná og þjálfararnir velja svo sjö leikmenn til viðbótar.
 
Fréttir
- Auglýsing -