spot_img
HomeFréttirSjö í röð hjá Miami: Knicks lögðu Spurs í stigasúpu

Sjö í röð hjá Miami: Knicks lögðu Spurs í stigasúpu

 
Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Miami Heat unnu sinn sjöunda deildarsigur í röð og New York Knicks báru sigur úr býtum gegn San Antonio Spurs í leik þar sem alls 243 stig voru skoruð.
Miami 101-89 Milwaukee
Dwyane Wade var enn við sama heygarðshornið en stigunum hreinlega rignir niður hjá kappa þessi misserin. Í nótt setti Wade 34 stig fyrir Heat og næstur honum kom LeBron James með 25 stig, 9 stoðsendingar og 6 fráköst. Hjá Bucks var John Salmons með 18 stig. Þá eru fréttir af Udonis Haslem leikmanni Heat en hann er að glíma við erfið meiðsli og búist við því að hann verði hugsanlega leikfær í aprílmánuði.
 
New York 128-115 San Antonio
Wilson Chandler fór fyrir Knicks í leiknum með 31 stig og 9 fráköst og ekki þar langt undan kom Amare Stoudemire með 28 stig og 9 fráköst sem og Raymond Felton sem einnig skoraði 28 stig og gaf 7 stoðsendingar. Myndarlegt framlag frá þessum byrjunarliðsmönnum Knicks. Hjá Spurs dreifðist stigaskorið heldur jafnara en þar fremstur á sviði var Tony Parker með 26 stig en sex leikmenn liðsins gerðu 13 stig eða meira í leiknum.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Chicago 111-91 Toronto
Memphis 110-105 Oklahoma
Dallas 84-81 Portland
Sacramento 102-108 Atlanta
Lakers 108-83 Detroit
 
Mynd/ Wade hefur verið stórkostlegur í síðustu leikjum Heat.
 
Fréttir
- Auglýsing -