spot_img
HomeFréttirTCU hefur leik í MWC riðlinum í nótt

TCU hefur leik í MWC riðlinum í nótt

 
Helena Sverrisdóttir hefur leik í nótt í Mountain West Confrence riðlinum með bandaríska háskólaliðinu sínu TCU. Bæði fyrir leiktíðina og nú síðustu vikur og mánuði hefur TCU klifrað upp styrkleikalistann og búist við miklu af hópnum enda ríkjandi meistarar í MWC riðlinum.
Baráttan hefst á útivelli þar sem TCU mætir San Diego State í Kaliforníufylki Bandaríkjanna. Síðan þjálfarinn Jeff Mittie tók við TCU hefur hann stýrt liðinu til sigurs í fjórum af fimm opnunarleikjum í MWC. Þá verður einnig athyglisvert að fylgjast með Helenu í nótt og á næstu dögum þar sem hún er aðeins 11 stoðsendingum frá því að verða stoðsendigahæsti leikmaður TCU frá upphafi!
 
Fréttir
- Auglýsing -