Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og mörkuðu þeir endalok tólftu umferðar. Þá eru aðeins tvær umferðir eftir uns deildinni verður skipt upp í A og B riðil og liggur nú nokkuð ljóst fyrir hvernig riðlarnir verða skipaðir.
KR, Keflavík og Hamar eru örugg í A-riðli. Aðeins Haukar eru enn spurningamerki. Eitt lið úr neðri hlutanum getur þó enn skákað Haukum og það er Snæfell. Þó Snæfell og Njarðvík hafi bæði 8 stig hafa Haukar betur innbyrðis gegn Njarðvík en mæta Snæfell í næsta deildarleik í Hólminum. Þann leik þarf Snæfell að vinna með 12 stiga mun og Haukar að tapa í síðustu umferðinni, og Snæfell að vinna, til að Hólmarar sendi Hauka í B-riðil.
Annars voru úrslit kvöldsins eftirfarandi:
Fjölnir 57-79 Snæfell
Monique Martin var vart komin í gegnum Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli þegar hún mætti í Dalhús og raðaði niður 30 stigum, tók 15 fráköst, stal 3 boltum, varði 3 skot og gaf 3 stoðsendingar. Hjá Fjölni var Natasha Harris með 23 stig, 10 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta.
Haukar 62-72 Keflavík (Myndasafn)
Jaqculine Adamshick var að vanda fyrirferðamikil í liði Keflavíkur, í kvöld setti hún 23 stig og tók 22 fráköst ásamt því að stela 5 boltum. Hjá Haukum var Katie Snodgrass með 19 stig og 8 fráköst.
Grindavík 88-80 Njarðvík
Crystal Boyd skoraði 28 stig og tók 6 fráköst í liði Grindavíkur en hjá Njarðvík var Shayla Fields með 25 stig og 14 fráköst.
Nánar um leikina síðar í kvöld…
Ljósmynd/ Adamshick var í sérflokki að Ásvöllum í kvöld.




