Það var jafn leikurinn í upphafi hjá Snæfelli þegar þær mættu í Grafarvoginn og heimsóttu Fjölnisstúlkur í Iceland Express deild kvenna. Snæfellsstúlkur voru mættar með Monique Martin sem lenti á klakanum í dag. Illa gékk fyrir innlenda leikmenn að skora í dag í liði Fjölnis þrátt fyrir fullt af mjög opnum skotum og góðum færum en boltinn vildi ekki ofaní hringinn og skotnýting í þriggjastiga var 2 af 31 reyndu skoti.
Byrjunarlið leiksins.
Fjölnir: Natasha, Eva María, Inga Buzoka, Birna Eiríks, Erla Sif.
Snæfell: Berglind Gunnars, Björg Guðrún, Helga Hjördís, Hildur Björg, Monique Martin.
Monique og Berglind tóku leik Snæfells í sínar hendur og skiptust nánast á að skora fyrir þær í fyrsta hluta. Natasha Harris var Fjölnisliðsins helsti skorari og staðan var 18-19 fyrir Snæfell eftir fyrsta hluta.
Björg Einarsdóttir kom Snæfelli í 24-28 með góðum þrist og í kjölfarið komust þær í níu stiga forystu 26-35 með góðu framlagi liðsins. Inga Bozoka og Natasha Harris f´rou fyrir Fjölni en lítið bar á framlagi frá fleirum sem vantaði kannski örlítið. Engu að síður söxuðu Fjölnir á niður í eitt stig áður en flautað var til hálfleiks og Snæfell að klaufast eitthvað í sínum leik eftir góðan sprett. Staðan var 34-35 í leikhlé þar sem þær stöllur Inga og Natasha voru komnar með sín hvor 14 stigin fyrir Fjölni og í liði Snæfells var Monique með 12 stig, Berglind 8 stig og Björg 5 stig.
Leikurinn hélst hnífjajfn í upphafi seinni hálfleiks en Fjölnir jafnaði 41-41 og eftir það tóku Snæfellsstúlkur smá stökk og komust í 45-52 og voru svo 6 stigum yfir eftir þriðja hluta 48-54.
Eftir þrjú vítaskot frá Hildi Kjartansdóttur komust Snæfellingar í níu stiga forystu 52-61 og svo strax 52-65 og virtust ekki ætla að gefa neitt eftir þegar leið á fjórða hlutann. Svo fór að Fjölnir gafst upp og Snæfellsstúlkur enduðu flottann leik á að gefa í og setja niður 14 á móti 5 stigum Fjölnis og heil 25 stig á móti 9 í fjórða hluta og sigruðu leikinn sannfærandi 57-79. Monique Martin kom með látum inn í deildina aftur með 30 stig og 15 fráköst.
Helsta tölfræði leikmanna:
Fjölnir: Natasha Harris 23/10 frák/6 stoðs/6 stolnir. Inga Buzoka 22/12 frák. Birna Eiríksd 10/3 frák. Erla Sif 2/4frák.
Snæfell: Monique Martin 30/15 frák/3 stoðs. Berglind Gunnarsd 18/3 frák/3 stoðs. Helga Hjördís10/10 frák/3 stoðs. Hildur Björg 7/6 frák. Björg Guðrún 7 stig. Ellen Alfa 4 stig. Alda Leif 2 stig. Hrafnhildur Sif 1 stig.
Símon B. Hjaltalín.




