Í kvöld tóku Haukar á móti Keflvíkingum í Iceland-Express deild kvenna. Fyrir leikinn voru Keflavík í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en Haukar í því fjórða með 10 stig. Sigur í kvöld hefði tryggt Haukum sæti í A-riðli.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur og pressuðu Haukana stíft. Þær náðu mest 12 stiga forskoti en þá vöknuðu Haukastelpur til lífsins og minnkuðu muninn í 5 stig áður en leikhlutanum lauk.
Haukar skiptu yfir í svæðisvörn í öðrum leikhluta en hann var mjög jafn og liðin skiptust á að skora. Keflavík vann hann þó með 2 stigum og staðan í hálfleik því 38-31.
Munurinn hélst jafn í þriðja leikhluta þangað til undir lok leikhlutans að Haukar minnkuðu muninn í 3 stig með þristum frá Írisi og Katie. Þá sögðu Keflvíkingar hingað og ekki lengra og skoruðu næstu 10 stigin og var sigur þeirra bláklæddu aldrei í hættu eftir það. Lokastaðan 62-72 og staðan í efri hluta deildarinnar því óbreytt. Haukar þurfa nú einn sigur til að tryggja sig í efri hlutanum þegar deildinni verður skipt upp en Keflavík er fyrir löngu búnar að tryggja sér sæti þar.
Heildarskor:
Haukar: Kathleen Patricia Snodgrass 19/8 fráköst/6 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 12/5 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10/14 fráköst, Íris Sverrisdóttir 9, Helga Jónasdóttir 5/5 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 3, María Lind Sigurðardóttir 2, Sara Pálmadóttir 2, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 0, Lovísa Björt Henningsdóttir 0, Margrét Rósa Hálfdánardótir 0, Þórunn Bjarnadóttir 0/5 fráköst.
Keflavík: Jacquline Adamshick 23/22 fráköst/5 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 18/7 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/5 stoðsendingar, Pálína Gunnlaugsdóttir 8/7 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 4, Ingibjörg Jakobsdóttir 3, Hrund Jóhannsdóttir 2/4 fráköst, Marín Rós Karlsdóttir 0, Árný Sif Gestsdóttir 0, Eva Rós Guðmundsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Davíð Tómas Tómasson
Umfjöllun: [email protected]
Mynd: [email protected]




