spot_img
HomeFréttirBoston lagði Spurs í spennuleik: 22 stoðsendingar hjá Rondo

Boston lagði Spurs í spennuleik: 22 stoðsendingar hjá Rondo

 
Í mörg horn var að líta í NBA deildinni í nótt en stórleikur næturinnar var slagur Boston Celtics og San Antonio Spurs þar sem Celtics höfðu nauman 105-103 heimasigur í spennuleik. Rajon Rondo var duglegur að finna liðsfélaga sína í nótt og splæsti í hvorki fleirri né færri en 22 stoðsendingar!
Í stöðunni 105-96 Boston í vi log 50 sekúndur til leiksloka héldu flestir að sigur Boston væri í höfn. Spurs gerðu magnaða tilraun til að stela sigrinum, Ginobili setti þrist, Spurs strippuðu svo Paul Pierce úti á velli, komust inn í sending í næstu sókn og skyndilega var staðan orðin 105-103 og brotið á Ray Allen sem er um 90% vítaskytta. Hann brenndi af báðum vítunum! Spurs áttu lokasóknina og síðustu 40 sekúndurnar höfðu þeir gert allt rétt… uns Ginobili skeit á bitann með ömurlegu skotvali sem Paul Pierce átti ekki í vandræðum með að blokka. Furðulega slakur lokahnykkur Spurs eftir magnað áhlaup.
 
Paul Pierce gerði 31 stig fyrir Boston en Rajon Rondo var skeinuhættur með 12 stig, 22 stoðsendingar takk fyrir og 6 stolna bolta. Hjá Spurs var Manu Ginobili með 24 stig og 8 fráköst og þeir Tim Duncan og Tony Parker bættu við 18 stigum hvor.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Cleveland 105-120 Toronto
New Jersey 96-94 Chicago
Orlando 97-87 Milwaukee
Philadelphia 109-97 Washington
Minnesota 105-108 Charlotte
New Orleans 103-110 Golden State
Houston 100-103 Portland
Utah 87-110 Atlanta
Phoenix 95-99 Lakers
LA Clippers 106-93 Denver
 
Mynd/ Rondo gaf 22 stoðsendingar í nótt!
 
Fréttir
- Auglýsing -