spot_img
HomeFréttirVarnartilburðir Helenu réðu úrslitum: TCU með sigur í fyrsta leik ársins

Varnartilburðir Helenu réðu úrslitum: TCU með sigur í fyrsta leik ársins

 
Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í TCU unnu sinn fyrsta leik á nýja árinu í nótt þegar liðið mætti San Diego State skólanum í Kaliforníufylki. Helena Sverrisdóttir stal boltanum í lokasókn San Diego og kom þannig í veg fyrir að San Diego gæti freistað þess að jafna eða stela sigrinum með þriggja stiga körfu, lokatölur 47-49 TCU í vil.
Leikurinn í nótt markaði einnig upphaf keppninnar hjá TCU í Mountain West Riðlinum. Helena lék í 38 mínútur í leiknum og skoraði 7 stig, hún var einnig með 12 fráköst og 8 stoðsendingar sem þýðir að hún þarf bara 3 til viðbótar til þess að verða stoðsendigahæsti leikmaður TCU í sögu skólans. Þá voru stolnu boltanir 5 talsins hjá Helenu og þar með talinn sá síðasti þegar 3 sekúnudur voru til leiksloka.
 
TCU hefur þá unnið 9 leiki á öllu tímabilinu og tapað 6 og þessi 12 fráköst hjá Helenu í nótt voru það mesta sem hún hefur tekið á þessu tímabili.
 
Fréttir
- Auglýsing -