Grindvíkingar mæta Njarðvíkingum í Iceland Express deild karla í kvöld og það án Bandaríkjamanns því bakvörðurinn Brock Gillespie ákvað að ganga á bak orða sinna og koma ekki til landsins. Þetta staðfesti Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Grindvíkinga við Karfan.is í dag.
,,Hann kemur ekki þannig að leitin heldur áfram,” sagði Helgi en Brock þessi á m.a. nokkra NBA leiki að baki. Grindavík lét Jeremy Kelly fara á dögunum en þar á undan hafði Dre Smith beðist lausnar undan samningi í Röstinni af persónulegum ástæðum.




