KFÍ hefur samið við Serbann Marko Milicevic en hann kom til landsins nú í dag og mun að öllum líkindum vera í búning með Ísfirðingum gegn Tindastól nú á eftir. Milicevic lék síðast með Triglav í Slóveníu en hefur m.a. komið við hjá Livorno í Serie A á Ítalíu.
Marko er 204sm og er 29 ára gamall. Hann hefur tvöfalt ríkisfang, slóvenskt og serbneskt og var á síðustu leiktíð með 15,4 stig og 7,4 fráköst að meðaltali í leik hjá Triglav.
,,Ég vonast til að geta fært KFÍ það sem þarf til að gera breytingar á stöðu liðsins í deildinni, ég hef verið í þessari stöðu og í Slóveníu lék ég m.a. hjá klúbbi sem var 6-0 þegar ég kom en við náðum okkur í 6-6 og það væri gaman að endurtaka þann leik nú með KFÍ,” sagði Marko þegar Karfan.is náði tali af kappanum í dag.
Marko vill helst leika þrist eða fjarka en býst við því að vera meira í teignum í Iceland Express deildinni en hann hefur verið áður.
Í þessum rituðu orðum eru Marko og félagar í KFÍ að leggja af stað til Sauðárkróks frá Blönduósi svo það er ekki ósennilegt að viðureign Tindastóls og KFÍ verði fyrir smá seinkun þar sem veður á leið þeirra er fjarri því með besta móti. Fylgist nánar með þeim málum hjá www.kki.is
Mynd/ Jón Björn – Marko kom til landsins í dag.




