spot_img
HomeFréttirÚrslit: Grindvíkingar lögðu Njarðvík

Úrslit: Grindvíkingar lögðu Njarðvík

 
Einum leik er lokið í Iceland Express deild karla en heil umferð fer fram nú í kvöld. Viðureign Grindavíkur og Njarðvíkur hófst kl. 18:30 í Röstinni í Grindavík þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi í jöfnum slag. 
Lokatölur leiksins voru 86-78 Grindavík í vil þar sem Páll Axel Vilbergsson gerði 21 stig og Þorleifur Ólafsson var ekki fjarri þrennunni með 17 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar. Hjá Njarðvík var Christopher Smith með 24 stig og Hjörtur Hrafn Einarsson 14.
 
Nánar síðar…
 
Fréttir
- Auglýsing -