Heil umferð var á dagskránni í Iceland Express deild karla í kvöld og eru enn tveir leikir í gangi. Þremur leikjum var að ljúka þar sem KR, Snæfell og Keflavík höfðu öll góða sigra og Snæfell vann þar með sinn níunda deildarsigur í röð.
Stjarnan 76-95 KR
Justin Shouse með 19 stig, 5 fráköst og 7 stoðsendingar hjá Stjörnunni. Í liði KR var Pavel Ermolinskij með 24 stig, 12 fráköst og 6 stoðsendingar.
Snæfell 97-86 Fjölnir
Ryan Amoroso gerði 27 stig og tók 16 fráköst hjá Snæfell. Hjá Fjölni var Brandon Springer með 20 stig og 10 fráköst.
ÍR 88-112 Keflavík
James Bartolotta gerði 26 stig hjá ÍR og Kelly Biedler var með myndarlega tvennu, 16 stig og 16 fráköst. Hjá Keflavík átti Hörður Axel Vilhjálmsson glimrandi leik með 27 stig, 9 fráköst og 12 stoðsendingar. Þá var nýji liðsmaður Keflavíkur Thomas Sanders með 24 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.
Haukar 82-74 Hamar
Gerald Robinson gerði 29 stig og tók 19 fráköst í liði Hauka. Hjá Hamri var Andre Dabney með 28 stig og 8 fráköst.
Tindastóll 85-71 KFÍ
Friðrik Hreinsson gerði 25 stig fyrir Stólana, kappinn setti 5 af 7 þristum í kvöld. Hjá KFÍ var Darco Milosevic með 18 stig.
Friðrik Hreinsson gerði 25 stig fyrir Stólana, kappinn setti 5 af 7 þristum í kvöld. Hjá KFÍ var Darco Milosevic með 18 stig.
Þá vann Grindavík Njarðvík fyrr í kvöld 86-78.
Nánar síðar…
Mynd/ Ingi Þór þjálfari Snæfells hefur vel efni á því að splæsa í eitt bros eða tvö þessi misserin.




