Aðeins tveir leikir voru á dagskránni í NBA deildinni í nótt. Oklahoma City Thunder gerði góða ferð til Dallas og Sacramento Kings höfðu nokkuð öruggan sigur gegn Denver Nuggets. Óhætt er að segja að sigur Kings hafi verið nokkuð óvæntur því þeir sitja á botni Vesturstrandar á meðan Denver eru í 7. sæti.
Tyreke Evans fór mikinn í 122-102 sigri Sacramento gegn Denver. Evans gerði 27 stig og gaf 12 stoðsendingar í leiknum. Hjá Nuggets var Carmelo Anthony með 26 stig.
Kevin Durant setti niður 28 stig í sigri Oklahoma gegn Dallas í nótt. Lokatölur voru 99-95 Thunder í vil og hjá Nowitzki-lausum Dallasmönnum var Shawn Marion með 25 stig.
Mynd/ Durant fann sig vel gegn Dallas í nótt.




