FSu liðið slapp með skrekkinn í Iðu í gærkvöld þegar Leiknir kom í heimsókn á Selfoss í 1. deild karla. Eftir að hafa náð 10 stiga forskoti þegar lítið var eftir af leiknum misstu heimastrákar einbeitinguna og Valur Ingimundarson hárblásarann, sem annars var í gangi allan leikinn á hóflegri stillingu, upp á 4 af 6 mögulegum, og uppskar tæknivíti frá þeim Eggerti Þór og Einari Skarp. Leiknir gjörnýtti tækifærið og minnkaði muninn með 4 stigum í sókninni og jafnaði skömmu síðar. Valur Orri skoraði síðustu stigin úr tveimur vítaskotum þegar 4 sek. voru eftir af leiknum. Síðasta tilraun Leiknis var misheppnuð og FSu landaði sigri, 74-72.
Leikur þessi fer ekki í sögubækurnar frá fagurfræðilegu sjónarhorni. Þetta var svolítið nudd og hnoð og nöldur, og fáir í góðu skapi að sjá. Allt fór þó drengilega fram og gleðilegt að verða vitni að körfuboltaleik á Íslandsmóti karla þar sem engir erlendir leikmenn komu við sögu. Alllangt er orðið síðan undirritaður hefur gert það. Leiknir hefur engan erlendan leikmann haft í allan vetur og Richard Field sem hefur haft tögl og hagldir í deildinni með FSu er farinn af landi brott. Ekki stendur til að fylla skarð hans með aðkeyptum kröftum, heldur eiga strákarnir að sjá um þetta sjálfir, skv. orðum þjálfarans. Er það fagnaðarefni og gefur þeim tækifæri til að vaxa og þroskast enn ferkar en ella.
Um gang leiksins er það að segja að þetta var í járnum mest allan tímann. Leiknismenn voru heldur leiknari í fyrsta fjórðung og leiddu 21-23 að honum loknum. FSu liðið tók frumkvæðið afgerandi í öðrum hluta og vann hann með 10 stigum, staðan 43-35 í hálfleik. Í þriðja hluta gekk hvorki né rak langtímum saman. Heimaliðið skoraði bara 10 stig en gat þakkað sínum sæla fyrir að gestirnir voru lítið skárri með 15 stig og FSu hélt því forystunni, þó aðeins 3 stig skildi á milli fyrir lokasprettinn. Manni fannst þetta allt stefna í rétta átt og þegar langt var liðið á leikinn munaði mest 11 stigum fyrir FSu. En eins og fyrr var lýst gufaði sú forysta fljótt upp og leikurinn varð æsispennandi. Freistandi er að skrá það á reynsluleysi, enda leiðtogi FSu liðins horfinn á braut.
Hjá gestunum voru Helgi Davíð Ingason og Sverrir Ingi Óskarsson báðir með 22 stig. Helgi bætti við 5 fráköstum og Sverrir með afbragðs skotnýtingu. Hallgrímur Tómasson skoraði 9 stig og tók 11 fráköst, Snorri Fannar Guðlaugssonskoraði 8, Eiríkur Örn Guðmundsson 6 og Einar Hansberg Árnason 5. Kristinn Magnússon og Brynjar Smári Rúnarsson komu við sögu en skoruðu ekki að þessu sinni. Leiknismenn mættu bara 8 í leikinn auk þjálfarans, Ara Gunnarssonar, sem var allspakur.
Hjá FSu var Valur Orri stigahæstur eins og svo oft áður með 26 stig. Hann tók líka 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar, en tapaði 10 boltum og örlaði á nettum pirringi, enda dómgæslan honum ekki alltaf hagstæð, svona ofan úr stúku að sjá. Valur var ískaldur á vítalínunni í lokin og tryggði sigurinn með tveimur öruggum skotum. Sæmundur Valdimarsson átti góðan dag. Á aðeins 22 mínútum skoraði piltur 19 stig, tók 8 fráköst og skotnýtingin var upp á hið allra besta, enda framlagsstigin 25. Orri Jónsson skoraði 9 stig og stal 5 boltum, enda kunnur baráttujaxl. Maður leiksins var að mati undirritaðs Sigurbjörn Jónsson með 23 fráköst, 5 stoðsendingar og 3 stig. Framlag hans var 30 punktar. Stundum fannst manni þó Rodman-taktarnir óþarfir, að taka sóknarfráköst og gefa boltann út, aleinn á auðum sjó undir körfunni. En þvílík elja og dugnaður í þessum strák, ekki hávaxnari en hann er.
Aðrir heimamenn sem komu við sögu voru Arnþór Tryggvason með 7 stig, Svavar Stefánsson 2, Birkir Víðisson og Gísli Gautason. Þá er ótalinn Björn Kristjánsson, nýliðið í körfuboltaakademíunni, sem skoraði 3 stig, fallegan þrist úr sinni fyrstu snertingu við boltann. Undirrituðum hlýnaði um hjartarætur að sjá þar kominn efnilegan son gamals liðsfélaga úr ÍR, Kristjáns Oddssonar.
Mynd/ Úr safni: Guðmundur Auðunn varði lokaskot Leiknismanna í gær.
Umfjöllun: Gylfi Þorkelsson




