spot_img
HomeFréttirSundsvall á toppinn með sigri gegn Solna: 11 í röð

Sundsvall á toppinn með sigri gegn Solna: 11 í röð

 
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson komust á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í gær með spennusigri gegn Loga Gunnarssyni og félögum í Solna Vikings. Sigurinn var sá ellfti í röð í deildinni hjá Solna.
Logi Gunnarsson reyndi þriggja stiga skot til að jafna leikinn fyrir Solna þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka en það geigaði. Félagi hans Alex Lindqvist náði að blaka boltanum ofan og því reyndust lokatölur 75-76 Sundsvall í vil.
 
Hlynur gerði 10 stig, tók 16 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í liði Sundsvall og Jakob Örn bætti við 15 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum. Logi var stigahæstur hjá Solna með 17 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar.
 
Sunsvall hefur nú 30 stig á toppi deildarinnar en Solna er í 6. sæti með 18 stig.
 
Mynd/ Jakob Örn gerði 15 stig í sigri Sundsvall í gær.
 
Fréttir
- Auglýsing -