spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Bikarinn í brennidepli

Leikir dagsins: Bikarinn í brennidepli

 
8-liða úrslitin í Poweradebikarkeppni karla og kvenna standa nú sem hæst og í dag skýrast línurnar til muna. Kvennalið KR og Njarðvíkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum í gær og í kvöld skýrist hvaða fjögur lið skipi undanúrslitin í kvennaflokki. Í karlalflokki eru þrír leikir í dag og lokaleikurinn á morgun þegar Grindavík tekur á móti Laugdælum.
8-liða úrslit karla:
15:00 KR-Fjölnir (í beinni hjá RÚV)
19:15 Haukar-Njarðvík (ath Haukar TV)
19:15 Tindastóll-Skallagrímur (ath Skallagrímur TV)
(Grindavík-Laugdælir á morgun)
 
8-liða úrslit kvenna:
19:15 Snæfell-Hamar
19:15 Keflavík-Grindavík
(Njarðvík og KR komin áfram)
 
Þá eru einnig tveir leikir í 1. deild karla í dag. Ármann og topplið Þórs úr Þorlákshöfn mætast í Laugardalshöll kl. 14:00 og á sama tíma í Höllinni á Akureyri mætast Þór og Höttur Egilsstöðum.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -