Það var ekki fyrr en að 5 mínútur voru eftir af leik Keflavíkur og Grindavíkur í Powerade bikar kvenna sem að heimastúlkur í Keflavík náðu loksins að losa sig undan baráttuglöðum Grindavíkurstúlkum og lönduðu sæti í undanúrslitum með 78:61 sigri og segja lokatölur lítið um gang þessa leiks.
Það var augljóst vanmat hjá Keflavíkurstúlkum í kvöld en að sama skapi voru Grindavíkurstúlkur að sýna fádæma baráttu og elju í sínum leik. Framan af leik voru það aðeins Jackie Adamshick og Hrund Jóhannsdóttir sem voru að sýna eitthvað fyrir Keflavík allar aðrar voru langt frá sínu besta. Hjá Grindavík voru allar að berjast og allar að leggja eitthvað í púkkið. Þegar rúmar 5 mínútur voru eftir að leiknum misteig Crystal Boyd sig hjá Grindavík og um leið kviknaði í heimastúlkum sem fóru loksins að spila þann fanta varnarleik sem hafa sýnt á tímum í vetur.
Það stóð ekki á því að Keflavík náðu þá loksins að slíta sig frá gestum sínum og unnu að lokum sem fyrr segir 78:61 og náðu Grindavík aðeins að skora 2 stig á síðustu 2 mínútum leiksins á móti 11 stigum heimaliðsins.
Keflavíkurliðið þarf heldur betur að spíta í lófana ætli þær sér lengra í þessari keppni en þær voru ekki þær einu sem áttu slæman dag. Dómarar leiksins voru langt frá því að vera tilbúnir þetta kvöldið og áttu afleiddan leik þó svo að það hafi aldrei hallað á annað liðið. En þeir eru nú bara mennskir og geta átt slæma daga líkt og leikmenn.
Texti: SbS




