Snæfellsstúlkur fengu heimaleikinn í 8 liða úrslitum Poweradebikarsins og mótherjar þeirra urðu efsta lið Iceland express deildarinnar Hamar.
Byrjunarliðin:
Snæfell: Monique, Björg, Hildur, Berglind,
Hamar: Slavica, Jaleesa, Kristrún, Íris, Fanney.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og Davíð Tómasson.
Liðin voru jöfn á upphafsmínútunum og varð staðan strax 4-4. Hamar nýttu sér þá að Snæfell missti boltann nokkuð og leysti illa pressu og komust í 4-11. Snæfell náði þá að klóra í bakkann og söxuðu á 10-13. Snæfell hafði þó ekki nema tvo leikmenn sem skoruðu í fyrsta hluta þær Monique og Hildi Björg og staðan 10-20 fyrir Hamar þar sem Slavica og Jaleesa fóru fyrir stigaskori þeirra.
Hamar hélt forystu sinni 7-10 stig í öðrum hluta þó Snæfellsstúlkur gerðu sig líklegar til að gera áhlaup öðru hvoru þá voru þær að missa boltann alltof oft til að ná að klára sóknir sínar. Svo fór að staðan í hálfleik var 27-43 fyrir Hamri og virtust þær bara vera að auka forskotið hægt og rólega.
Í hálfleik var Monique Martin komin með 16 stig og 7 frák fyrir Snæfell og hjá Hmari var Jalessa Butler komin með 16 stig og 8 fráköst og Slavica Dimovska 14 stig.
Áður en langt um leið á þriðja leikhluta voru Hamarsstúlkur svo til komnar í gírinn og voru að kitla 30 stiga muninn 36-64. Snæfell setti þá upp pressu og náðu næstu 8 stigum 44-64. Staðan eftir þriðja hluta var 49-70 fyrir Hamar.
Snæfell náði ekki þeim sprettum sem þurftu til að knýja frekari dyra í þessum leik þar sem munurinn var of mikill til að Hamar léti hann frá sér auðveldlega. Snæfell leyfðu þó ekki frekari forystu Hamars að verða mikið meiri í fjórða hluta og börðust ágætlega. Hamar flaug að endingu sannfærandi í undanúrslit Poweradebikarsins með sigri 71-94.
Helsta tölfræði leikmanna:
Snæfell:
Monique Martin 36/14 frák. Helga Hjördís 8/6 frák. Björg Guðrún 8/4 frák. Hildur Björg 6/7 frák. Berglind Gunnars 5 stig. Sara Mjöll 4/7frák. Alda Leif 2 stig. Ellen Alfa og Aníta Rún 1 stig hvor. Sunna Rós skoraði ekki.
Hamar:
Jaleesa Butler 29/15 frák/4 stoð. Slavica Dimovska 26/4 frák/5 stoðs. Kristrún Sigrjónsd 22/4 frák/4 stoðs. Fanney Guðm 7/10 frák. Guðbjörg Sverrisd 6 stig. Jenný Harðard og Íris Ásgeirsd 2 stig hvor. Rannveig, Kristrún Rut, Adda María og Bylgja Sif skoruðu ekki.
Mynd/Þorsteinn Eyþórsson: Jaleesa Butler sækir að körfu Hólmara í kvöld.
Umfjöllun: Símon B. Hjaltalín.




