spot_img
HomeFréttirHaukasigur á Ásvöllum

Haukasigur á Ásvöllum

Haukar eru komnir áfram í Poweradebikar karla eftir frækinn sigur á Njarðvíkingum í kvöld. Liðsmenn og stuðningsmenn Hauka eru einkar ánægðir með gengi liðsins í bikarkeppninni en 11 ár eru síðan Haukar komust svona langt í keppninni.
 
Njarðvíkingar byrjuðu mun betur í kvöld og voru fljótlega komnir 10 stigum yfir og fóru þar Christofer Smith og Magnús Gunnarsson fyrir liði þeirra. Grænir leiddu með 10 stigum eftir leikhlutann 17-27 og var taktur Haukaliðsins alls ekki eins og hann hefur verið í undanförnum leikjum en það átti eftir að breytast.
 
Haukar hertu vörnina í upphafi annars leikhluta og jafnt og þétt minnkuðu þeir muninn. Vörn heimamanna skilaði þeim mörgum ódýrum körfum og fyrir vikið náðu þeir að komast fram úr gestunum. Haukar leiddu í hálfleik með þremur stigum, 46-43.
 
Semaj Inge fór mikinn í Haukaliðinu og um miðjan þriðja leikhluta var hann kominn með þrefalda tvennu (10 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar) og Haukaliðið í miklum ham. Pétur Ingvarsson þjálfari Haukamanna gerði létta breytingu á varnarleik sínum sem gerði það að verkum að Christofer Smith lék ekki jafn lausum hala í teig Haukaliðsins líkt og hann hafði gert í fyrri hálfleik. Smith gerði mikinn usla í vörn Hauka en hann skoraði ein 36 stig og áttu Haukar fá svör gegn honum fyrr en þeir fóru að tví- og þrídekka hann.
 
Haukar juku muninn jafnt og þétt og þegar langt var liðið á fjórða leikhluta voru þeir komnir 20 stigum yfir. Grænir klóruðu þó aðeins í bakkann og minnkuðu muninn í 14 stig áður en flautað var til leikhlés. Lokatölur á Ásvöllum urðu 98-84.
 
Hjá heimamönnum var Gerald Robinson stigahæstur með 27 stig og 12 fráköst en stigaskor Hauka dreifðist nokkuð á leikmennina. Semaj Inge endaði leikinn með 18 stig, 14 fráköst og 14 stoðsendingar og Haukur Óskarsson gerði 18
 
Hjá Njarðvík var Christofer Smith með 36 stig og Magnús Gunnarsson var honum næstur með 15 stig.

Tölfræði leiksins

 
 
 
Mynd: Semaj Inge var drjúgur í kvöld og gerði þrefalda tvennu[email protected]
Fréttir
- Auglýsing -