spot_img
HomeFréttirLeikir dagsins: Grindavík eða Laugdælir í undanúrslit?

Leikir dagsins: Grindavík eða Laugdælir í undanúrslit?

 
Í kvöld lýkur 8-liða úrslitunum í Poweradebikarkeppni karla þegar Grindavík tekur á móti Laugdælum í Röstinni kl. 19:15. Eins og kunnugt er halda Grindvíkingar sig við toppinn í Iceland Express deild karla en Laugdælir eru við botninn í 1. deild karla. Það verður því á brattann að sækja hjá námsmönnunum af Vatninu.
Um helgina komust svo KR, Haukar og Tindastóll áfram í undanúrslit í karlaflokki og KR, Njarðvík, Keflavík og Hamar komust áfram í kvennaflokki.
 
Þá fer fram einn leikur í unglingaflokki karla í kvöld þegar Valur/ÍR tekur á móti Keflavík kl. 20:30 í Vodafonehöllinni.
Fréttir
- Auglýsing -