spot_img
HomeFréttirHeiðrún samdi við Coker háskólann

Heiðrún samdi við Coker háskólann

 
Bakvörðurinn Heiðrún Kristmundsdóttir fór í sumar til Bandaríkjanna og er nú þar við nám og körfuknattleik í Norður-Karólínufylki í bænum Winston-Salem. Þar leikur Heiðrún með Forsyth Country Day School en nú hefur hlaupið á snærið og Heiðrún búin að tryggja sér pláss í Cocker háskólanum en körfuboltalið skólans leikur í 2. deild í NCAA háskólakörfuboltadeildinni í Bandaríkjunum.
,,Coker er frekar lítill D2 skóli í Suður-Karólínu og Jenny og Vic Finora sem voru í KR í fyrra eru einmitt þjálfarateymið þar,” sagði Heiðrún sem verður á fullum skólastyrk hjá Coker. ,,Þetta byrjaði allt saman í vor í úrslitakeppninni s.s. þegar Jenny fór að tala við Coker um þjálfarastöðu næsta vetur. Hún vissi að ég væri að fara út í high school og að mig langaði lengra. Hún sagði við mig að hana langaði að fá mig til sín ef hún fengi stöðuna. Svo fékk hún starfið og hringdi reglulega í mig í allt sumar og við erum búnar að halda sambandi í allan vetur,” sagði Heiðrún sem leist strax vel á skólann.
 
,,Þetta er mjög lítill og gamall skóli með tæplega 1000 nemendur en er vaxandi og þá sérstaklega körfuboltastarfið. Jenny og Vic eru að gera frábæra hluti þarna og eru mjög virt af samfélaginu. Eini leikstjórnandinn hennar er að útskrifast svo ef ég stend mig þá vonandi fæ ég mikinn spilatíma á fyrsta árinu mínu. Það er mikil uppbygging í skólanum og ég vil eiga þátt í þeirri uppbyggingu,” sagði Heiðrún sem þegar í byrjun skólaárs var kominn með töluverðan áhuga frá Coker en hún vildi ekki skuldbinda sig strax.
 
,,Ég vildi halda öllum gluggum opnum ef eitthvað annað bankaði upp á. Svo um jólin þá áttaði ég mig bara á því að staðan gæti einfaldlega ekki verið betri svo ég sló til og hringdi í Jenny núna þann 4. janúar síðastliðinn. Ég skrifa ekki formlega undir fyrr en 13. apríl næstkomandi, þá verður eitthver formleg athöfn í íþróttahúsinu sem ég hlakka mikið til.”
 
Það er því ljóst að íslenskir leikmenn munu halda áfram að láta að sér kveða í bandaríska háskólakörfuboltanum.
 
Mynd/ Úr einkasafni Heiðrúnar: Fjölskylda Heiðrúnar sem hún dvelur hjá í Winston-Salem kom færandi hendi með þessa forlátu köku þegar ljóst var að Coker yrði fyrir valinu.
 
Fréttir
- Auglýsing -