Þá er ljóst hvaða lið munu skipa undanúrslitin í Poweradebikarkeppni karla þetta árið en Grindavík og Laugdælir mættust í síðasta leik 8-liða úrslitanna í Röstinni í kvöld.
Heimamenn í Grindavík höfðu öruggan sigur í leiknum, 91-56. Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur hjá Grindavík með 25 stig en hjá Laugdælum var Anton Kári Kárason með 25 stig.
Það eru því KR, Tindastóll, Haukar og Grindavík sem munu leika í undanúrslitum keppninnar.




