spot_img
HomeFréttirBarnett samdi við Hött: Að duga eða drepast segir þjálfarinn

Barnett samdi við Hött: Að duga eða drepast segir þjálfarinn

 
Breski miðherjinn Hugh Barnett hefur söðlað um og leikur ekki meira með KFÍ í Iceland Express deildinni á þessari leiktíð. Barnett er genginn til liðs við Hött í 1. deild karla og þar er staðan ansi áhugaverð á botni deildarinnar þar sem fjögur lið eru jöfn á botninum með fjögur stig. Karfan.is ræddi við Viggó Skúlason þjálfara Hattar um stöðu liðsins og nýja leikmanninn.
,,Barnett mátti ekki spila í síðasta leik gegn Þór Akureyri þar sem það var frestaður leikur frá 17. desember 2010. Hann verður með gegn Ármanni á fimmtudag og vonandi bara út tímabilið. Hann hefur þegar leikið einn leik og það var gegn Skallagrím á dögunum,” sagði Viggó sem stýrir Hetti gegn Ármenningum á fimmtudag og næsti deildarleikur þar á eftir er gegn Leikni en bæði þessi lið ásamt Laugdælum skipa þessa fjögurra liða botnbaráttu.
 
,,Það eru ekkert nema úrslitaleikir framundan. Við verðum að vinna næstu tvo leiki til að halda okkur uppi, nú er að duga eða drepast. Mínir menn vita nú að hverju þeir ganga en tímabilið hefur verið smá sorgarraun, við byrjuðum tímabilið seint og fámennur hópur að æfa og það er svona það sem hrjáir okkur mest,” sagði Viggó en jafnan eru þau í þynnra lagi undirbúningstímabilin fyrir austan.
 
,,Undirbúningstímabilið okkar er eiginlega deildarkeppnin á meðan aðrir eiga kost á æfingaleikjum fyrir sunnan er næsta lið við okkur Þór Akureyri,” sagði Viggó sem er með töluvert breytt lið frá síðasta tímabili. ,,Ég er eiginlega með alveg glænýtt lið frá því í fyrra, reyndar er Davíð Ragnarsson kominn aftur og svo sjáum við bara til hvernig Barnett mun henta liðinu,” sagði Viggó sem skoraði á íbúa Egilsstaða að fjölmenna á leikinn gegn Ármanni næsta fimmtudag.
 
,,Við þurfum á stuðninginum að halda og ætlum að sýna okkar bestu hliðar því við höfum tapað mjög mikilvægum leikjum á tímabilinu. Hér heima gegn Leikni og úti í þríframlengdum leik gegn Ármanni en ég hef tröllatrú á þessu verkefni okkar.”
 
Mynd/ Viggó Skúlason hefur tröllatrú á verkefni Hattar en næstu tveir leikir munu vafalítið hafa úrslitaáhrif á stöðu liðsins í deildinni.
 
Fréttir
- Auglýsing -