Fjórir leikir fara fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld og verður Íslendingaslagur Sundsvall Dragons og Uppsala Basket í beinni netútsendingu hjá http://svenskbaskettelevision.se/
Sundsvall er í hörkugír á toppi deildarinnar og hafa unnið 11 deildarleiki í röð. Uppsala er í 5. sætinu með 22 stig.
Þá verður Logi Gunnarsson í eldlínunni með Solna Vikings þegar liðið Norrköping Dolphins á útivelli en Dolphins hafa 22 stig í 4. sæti deildarinnar en Solna 18 stig í 6. sætinu.
Viðureign Sundsvall og Uppsala hefst kl. 18:04 að íslenskum tíma á http://svenskbaskettelevision.se/
Mynd/ Helgi Magnússon og félagar í Uppsala heimsækja Hlyn og Jakob í Sundsvall.




