spot_img
HomeFréttirEinar og Friðrik taka saman við Njarðvík: Liðið hefur burði til að...

Einar og Friðrik taka saman við Njarðvík: Liðið hefur burði til að gera betur

 
Þeir Friðrik Pétur Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson munu stýra Njarðvík saman það sem eftir lifir leiktíðar í Iceland Express deild karla. Í gærkvöldi steig Sigurður Ingimundarson til hliðar og er þetta í fyrsta sinn í rúm 14 ár sem þjálfari lætur af störfum með Njarðvíkurliðið á yfirstandandi tímabili. Einar Árni sagði í samtali við Karfan.is að bæði hann og Friðrik hefðu fulla trú á því að Njarðvíkurliðið hafi alla burði til þess að gera betur en staða liðsins í deildinni segir til um.
,,Það er hugur í okkur, annars væri þetta ekki á dagskrá. Þetta kom bara upp í gærkvöldi og kannski lítill tími til að fara yfir stöðuna en við þurfum að nýta næstu daga vel og koma okkur inn í okkar hlutverk og setja í gang þá hluti sem við viljum sjá hjá liðinu,” sagði Einar við Karfan.is en hann og Friðrik eru nú á fundi með leikmönnum liðsins.
 
,,Við höfum fulla trú á því að liðið hafi alla burði til að gera betur en við tökum bara einn dag í einu,” sagði Einar sem ásamt Friðriki stýrir Njarðvíkingum gegn ÍR um helgina. Von er á hörkuslag í þeirri viðureign enda bæði lið á svipuðum slóðum nærri botni deildarinnar.
 
,,Það jákvæða við þetta að koma núna inn er kannski sú staðreynd að við þekkjum leikmenn liðsins vel og þeir okkur. Það getur vonandi bara hraðað ferlinu í að koma okkur öllum á sömu blaðsíðuna því við erum fyrir fram allir í sömu bókinni, að berjast fyrir stolti klúbbsins.”
 
Mynd/ Friðrik mun stýra Njarðvíkingum ásamt kollega sínum Einari Árna.
 
Fréttir
- Auglýsing -