Heil umferð fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og þar sem Snæfell misfórst að hafa 12 stiga sigur eða meira á Haukum er ljóst hvaða lið munu skipa A-riðil nú þegar deildinni verður skipt upp eftir næstu umferð. Hamar, Keflavík, KR og Haukar verða í A-riðli en Snæfell, Njarðvík, Fjölnir og Grindavík verða í B-riðli. Tvö af liðum B-riðils sem verða í 5. og 6. sæti munu leika í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á meðan tvö efstu liðin í A-riðli munu sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Úrslit kvöldsins:
Snæfell 73-72 Haukar
Monique Martin gerði sigurstig Snæfells af vítalínunni þegar 23 sekúndur voru til leiksloka. Martin lauk leik með 31 stig og 18 fráköst. Hjá Haukum var Kathleen Snodgrass með 29 stig og 9 fráköst. Þrátt fyrir sigur Snæfells í leiknum var hann ekki nægilega stór, hann hefði þurft að vera 12 stig svo Snæfell ætti möguleika á sæti í A-riðli.
Fjölnir 77-82 KR
Inga Bozuka gerði 23 stig og tók 15 fráköst fyrir Fjölni en hjá KR var Chazny Morris með 25 stig og 5 fráköst.
Keflavík 59-71 Grindavík
Grindvíkingar hefndu fyrir bikartapið gegn Keflavík á dögunum með sigri í kvöld. Þetta va rannar ósigur Keflavíkur á heimavelli í vetur og ljóst að Hamar mun ljúka deildarkeppninni á toppi deildarinnar nú þegar skipt verður í riðla. Crystal Ann Boyd gerði 29 stig og tók 7 fráköst í liði Grindavíkur en hjá Keflavík, sem lék í kvöld án Birnu Valgarðsdóttur, var Jaquline Adamshick með 34 stig og 10 fráköst.
Njarðvík 67-93 Hamar
Shayla Fields með 26 stig og 9 fráköst í liði Njarðvíkinga. Hjá Hamri var Slavica Dimovska með 30 stig og 7 stoðsendingar og Kristrún Sigurjónsdóttir bætti við 25 stigum.
A-riðill:
Hamar
Keflavík
KR
Haukar
B-riðill:
Snæfell
Njarðvík
Grindavík
Fjölnir
Nánar síðar…




