Einn leikur fer fram í 1. deild karla í kvöld þegar Höttur á Egilsstöðum tekur á móti Ármanni en þessi tvö lið ásamt tveimur öðrum eru á botni 1. deildar og því um mikilvægan slag að ræða. Viðureign liðanna hefst kl. 18:30 á Egilsstöðum.
Svona er staðan á botninum:
7. Leiknir – 4 stig
8. Ármann – 4 stig
9. Höttur – 4 stig
10. Laugdælir – 4 stig
Það lið sem hefur sigur í leik kvöldsins getur um stundar sakir komið sér úr botnhnappinum. Fyrri deildarviðureign Ármanns og Hattar fór fram í Laugardalshöll og var vægt til orða tekið hjartastyrkjandi. Leikurinn var tvíframlengdur þar sem Ármann fór með 69-67 sigur af hólmi svo innbyrðismunurinn á liðunum er ekki nema tvö stig.
Aðrir leikir dagsins:
11. flokkur drengja – bikar
19:30 Breiðablik-Ármann
Drengjaflokkur
20:00 Snæfell/Skallagrímur-Fjölnir (Stykkishólmur)
Unglingaflokkur karla
21:00 Haukar – Njarðvík




