Í gær var dregið í undanúrslit í Poweradebikarkeppni karla og kvenna í höfuðstöðvum Vífilfells í Reykjavík. Karfan TV ræddi við fulltrúa liðanna eftir dráttinn í kvennaflokki en þar mætast annarsvegar KR og Hamar og hinsvegar Njarðvík og Keflavík.
Við ræddum við Ágúst Björgvinsson, Jón Halldór Eðvaldsson, Önnu Maríu Ævarsdóttur og Hildi Sigurðardóttur. Sjá viðtölin hér.




