Langflestir á Íslandi leika körfubolta í NIKE skóm ef marka má könnun sem verið hefur hér á síðunni síðustu vikuna eða svo. Hátt í 600 manns tóku þátt og svöruðu til um hvernig skóm þeir klæddust við körfuknattleiksiðkun.
70% svarenda leika í NIKE skóm
15% í Adidas
6% nota aðra tegund
4% í PEAK
3% í Reebok
3% í Converse
Nú er komin inn ný könnun og að þessu sinni erum við að forvitnast um hvað sé í brúsanum á bekknum hjá þér í kappleikjum?




