spot_img
HomeFréttirBYKO aðalstyrktaraðili KKD Stjörnunnar

BYKO aðalstyrktaraðili KKD Stjörnunnar

 
Á dögunum skrifaði körfuknattleiksdeild Stjörnunnar undir samning við BYKO um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili meistaraflokks karla sem og yngriflokka deildarinnar. Logo BYKO er því framan á öllum búningum fyrrgreindra flokka auk þess sem BYKO eru sýnilegir í aðal keppnissal Íþróttahússins í Ásgarði.
BYKO hefur verið einn af aðal styrktaraðilum körfuknattleiksdeildar síðastliðin ár en fyrirtækið rekur afar öfluga byggingavöruverslun í Kauptúni í Garðabæ sem þjónustar bæði Garðbæinga og Hafnfirðinga.
 
Á meðfylgjandi mynd má sjá Sigurð Ragnarsson forstjóra BYKO og Gunnar Kr. Sigurðsson, formann KKD Stjörnunnar undirrita samninginn.
 
Fréttir
- Auglýsing -