Þór Þ. tók á móti Leikni í 1. deild karla í kvöld og sigruðu örugglega 82:50. Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust til að mynda í 9:0 þegar um þrjár mínútur voru liðnar af leiknum. Vörnin hjá heimamönnum var að virka mjög vel og þegar tæp mínúta var eftir af leikhlutanum var staðan 28:6 Þórsurum í vil. Leiknismenn tóku þá við sér og skoruðu sex stig á 40 sekúndum gegn engu hjá Þórsurum og náðu þar með að minnka muninn í 28:12 en það voru lokatölur fyrsta leikhluta.
Heimamenn komu grimmir til leiks í öðrum leikhluta og voru að leika flottan bolta og eftir fimm mínútur var staðan 42:16. Þá fór að halla verulega undan fæti hjá heimamönnum og við tók óþarflega mikið af mistökum sem Leiknismenn náðu aðeins að nýta og skoruðu þeir sjö stig gegn fjórum hjá heimamönnum og var staðan 46:23 eftir annan leikhluta.
Mikið jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta og virtust liðsmenn Þórs ekki alveg tengdir og er hægt að fullyrða að fyrir augað verður þessi leikhluti ekki skráður í sögubækurnar fyrir fagran körfuknattleik. En annað var uppá teningnum hjá Leiknismönnum og settu þeir upp skotsýningu þegar tæpar fjórar mínútur lifðu af þriðja leikhluta og skoruðu fimmtán stig á meðan ekkert gekk í sóknunum hjá heimamönnum, sem einungis gerðu tvö stig á síðustu fjórum mínútum leikhlutans og var staðan 66:42 eftir þriðja leikhluta.
Fjórði leikhlutinn var eins og sá þriðji, ekki tilþrifamikill en það var löngu orðið klárt hverjir færu með sigur af hólmi í kvöld. Þórsarar byrjuðu vel og skoruðu fyrstu sjö stigin og greinilega þreytan farin að gera vart við sig hjá Leikni en þeim tókst einungis að skora átta stig í leikhlutanum gegn sextán stigum heimamanna sem spiluðu að mestu leyti á varamönnum sínum seinnipart leikhlutans og höfðu að lokum öruggan sigur 82:50.
Stigaskor beggja liða var mjög dreift og til að mynda var enginn í liði Leiknis með meira en átta stig og í liði Þórs fór enginn yfir sextán stig. Vert er að nefna að tveir leikmenn Þórs voru með tvöfalda tvennu en það voru Emil Karel Einarsson með fjórtán stig og ellefu fráköst og Bjarki Gylfason með tíu stig og átján fráköst en hann var einnig með fjóra stolna bolta í leiknum.
Umfjöllun: Davíð Þór Guðlaugsson




