Breiðablik komst í 5. sæti 1. deildar karla í gærkvöldi með nokkuð öruggum sigri á FSu 76-53. Þorsteinn Gunnlaugsson fór mikinn í liði Breiðabliks með 22 stig og 16 fráköst. Valur Orri Valsson var atkvæðamestur hjá FSu með 23 stig og 7 fráköst.
Ef blásið yrði til úrslitakeppninnar í 1. deild núna myndu Þór Þorlákshöfn fara beint upp í úrvalsdeild og FSu í 2. sæti myndi mæta Breiðablik í 5. sæti í fyrstu umferð og í hinum leiknum mættust þá Þór Akureyri í 3. sæti og Skallagrímur í 4. sæti.
Enn er nóg af stigum í pottinum og fróðlegt að sjá hverju fram vindur enda Valsmenn á sömu miðum og Breiðablik með 12 stig í 6. sæti deildarinnar.




