Valur og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í gærkvöldi en fyrir leikinn höfðu bæði lið 12 stig í deildinni. Leiddir áfram af herra Borgarnes, Hafþóri Inga og Darrell Flake náðu Skallarnir að skjóta sér upp fyrir Valsmenn með 79-93 útisigri.
Flake gerði 26 stig og tók 10 fráköst fyrir Skallagrím og Hafþór Ingi bætti við 23 stigum. Hjá Valsmönnum var Calvin Wooten með 28 stig og Björgvin Rúnar Valentínusson 16.
Torfi Magnússon mætti vopnaður myndavélinni í gær og má sjá myndasafn frá leiknum hér.




