Jón Guðlaugsson formaður KKD UMFN býst við að skrifa undir félagsskiptabeiðni Magnúsar Þórs Gunnarssonar í dag en Magnús ætlar að skipta yfir í uppeldisfélag sitt Keflavík og hefur hann þegar hafið æfingar með Keflvíkingum.
Karfan.is ræddi stuttlega við Jón sem sagði að þegar Sigurður Ingimundarson lét af störfum hjá UMFN hafi Magnús einnig viljað hætta en hann kom frá danska liðinu Aabyhoj fyrr á þessu tímabili. Magnús verður því að öllum líkindum orðinn löglegur liðsmaður Keflvíkinga í dag og því annar leikmaðurinn þetta árið til að fara úr Ljónagryfjunni yfir til Keflavíkur. Sá fyrri heitir Nick Bradford og gekk í raðir Keflvíkinga í síðustu úrslitakeppni.
,,Ég á ekki aðra ósk en að Magnúsi farnist sem allra best enda fer þar góður drengur og á hann allt gott skilið,” sagði Jón í samtali við Karfan.is.




