spot_img
HomeFréttirÍslendingar danskir bikarmeistarar

Íslendingar danskir bikarmeistarar

Bikarúrslit dönsku bikarkeppninnar fóru fram í gær í Horsnes. Íslendingar áttu fulltrúa í karla og kvennaleiknum og bæði Íslendingaliðin fóru með sigur af hólmi. Guðni Valentínusson og félagar í Bakken bears unnu Svendborg rabbits 78-75 en SISU sem Hrannar Hólm þjálfar sigraði Åbyhøj 63-60 í kvennaleiknum.
 
Báðir leikirnir voru jafnir og spennandi og unnust í lokin.
 
Hér má lesa um kvennaleikinn og hér um karlaleikinn ef fólk vill spreyta sig í dönskunni.
 
 
Mynd: Per Wied – Guðni og aðrir Bakken menn taka við verðlaununum.
Fréttir
- Auglýsing -