,,Grindavík er topplið með eða án þess Bandaríkjamanns sem þá skortir núna. Í mínum undirbúningi geri ég ráð fyrir að aðrir leikmenn Grindavíkurliðsins stígi upp og þeir verði alveg jafn erfiðir viðureignar. Við förum í alla leiki til þess að vinna þá og ég hef ofurtrú á þeim strákum sem eru í liðinu okkar. Ég held að deildin hafi sýnt það að allir geta unnið alla og er stefnan sú að gera Grindvíkingum lífið leitt á Jakanum í kvöld,” sagði Shiran Þórisson þjálfari KFÍ í samtali við Karfan.is í dag en botnlið KFÍ tekur á móti Grindavík í kvöld í Iceland Express deild karla.
Hvernig er andinn í hópnum eftir síðustu breytingar, er nýji maðurinn Marko búinn að koma sér vel fyrir og farinn að líkjast því sem maður hefur séð til hans á ,,highlight myndböndunum"?
Andinn í hópnum er mjög góður þrátt fyrir að KFÍ hafi ekki landað sigrum að undanförnu, það eru allir stemmdir fyrir því að sanna sig í úrvalsdeildinni og er það er mikilvægt hugarfar. Nýi leikmaðurinn Marko er að aðlagast aðstæðum og er kominn mun betur inn í hlutina heldur en í síðasta leik, það verður því góður prófsteinn fyrir hann að mæta liði Grindavíkur.
Hlutverk stuðningsmanna KFÍ í kvöld, ætla Ísfirðingar ekki að fylla Jakann í von um stig?
Stuðningsmenn hafa verið ákaflega mikilvægir í heimaleikjum okkar í vetur og verður kvöldið í kvöld engin undantekningin þar á. Stuðningsmennirnir hafa stutt okkur í gegnum súrt og sætt í gegnum tíðina og vona ég að liði geti sýnt þeim hvers við erum megnugir í næstu leikjum og byrja í kvöld með því að ná í sigur á móti Grindvíkingum.
Hvernig hefur þér gengið að komast í takt við úrvalsdeildina sem þjálfari?
Ég vissi það fyrirfram að það yrði erfitt að takast á við þjálfarahlutverkið. Ég hef gaman af áskoruninni sem þjálfuninni fylgir og vonast til þess að geta dregið fram það besta úr þeim mannskap sem við höfum til taks. Ég hef gaman af því að vinna með strákunum í liðinu og það verður frábært þegar sú samvinna skilar árangri með mikilvægum sigrum. Sem nýliðar í deildinni þá er það markmið okkar að halda okkur í deildinni og tel ég það enn sem komið er raunhæft markmið.
Mynd/ Hjalti Árnason: Shiran Þórisson hefur í mörg horn að líta í kvöld þegar Grindvíkingar koma í heimsókn.




