spot_img
HomeFréttirÚrslit: Pavel setti stoðsendingamet í deildinni

Úrslit: Pavel setti stoðsendingamet í deildinni

 
KR, Grindavík og Keflavík höfðu sigur í leikjum sínum í kvöld þegar þrettándu umferð í Iceland Express deild karla lauk. Topplið Snæfells lenti á rauðu ljósi í Toyota-höllinni og þar með var níu leikja sigurganga liðsins í deildinni á enda. Pavel Ermolinskij setti stoðsendingamet þetta tímabilið í DHL-höllinni og Helgi Jónas Guðfinnsson var í búning þegar Grindavík náði í tvö stig á Ísafirði og færði heimamönnum tíunda deildartap sitt í röð.
Úrslit:
 
KFÍ 64-74 Grindavík
Marko Milicevic var með 16 stig og 5 fráköst hjá KFÍ sem tapaði sínum tíunda leik í röð í deildinni. Þá var Ryan Pettinella með 17 stig og 4 fráköst í liði Grindavíkur og þjálfarinn Helgi Jónas Guðfinnsson var í búning og náði að kreista fram 2 stig, frákast og stoðsendingu, seigur gamli.
 
KR 97-87 Hamar
Pavel Ermolinskij fór á kostum í liði KR í kvöld með 17 stig, 16 fráköst og 16 stoðsendingar en þar með er kappinn búinn að gefa flestar stoðsendingar í einum leik þessa leiktíðina… já og mögnuð þrenna hér á ferð! Marcus Walker var þó stigahæstur hjá KR með 19 stig og þeir Svavar Páll Pálsson og Kjartan Kárason gerðu báðir 14 stig í liði Hamars.
 
Keflavík 112-89 Snæfell
Thomas Sanders gerði 30 stig í liði Keflavíkur og Hörður Axel Vilhjálmsson bætti við 17 stigum og 11 stoðsendingum. Magnús Þór Gunnarsson sem skipti frá Njarðvík yfir í Keflavík um helgina lék sinn fyrsta leik með uppeldisfélaginu í kvöld, hann náði ekki að skora en tók 7 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hjá Snæfell var Jón Ólafur Jónsson með 28 stig og 13 fráköst, næstur honum kom Pálmi Freyr Sigurgeirsson með 20 stig.
 
Nánar síðar…
 
Fréttir
- Auglýsing -