Keflvíkingar hófu sláturtíð sína snemma á þessu ári þegar að meistarar Snæfells mættu í heimsókn. 112:89. Keflvíkingar áttu harma að hefna í þessum leik þar sem að Snæfellingar yfirgáfu Toyotahöllina síðast með "þann stóra" undir arminum.
Eftir 3 mínútur af leiktíma neyddist Ryan Amarosa til að yfirgefa völlinn með kálfameiðsl. Hann kom ekki meira við sögu og munaði um minna fyrir gestina. Snæfellingar náðu að halda út fyrsta fjórðung en strax í öðrum fór að draga á milli liðanna og Keflvíkingar settu í annan gír. Þeir unnu annan fjórðung með 20 stiga mun og leiddu með 18 stigum í hálfleik. Þá þegar hafði Thomas Sanders sem var að spila sinn fyrsta heimaleik unnið sig inn í hug og hjörtu stuðningsmanna Keflavíkur með frábærum tilþrifum og dugnaði.
Seinni hálfleikur var eign Keflvíkinga að undanskildum fáeinum mínútum þar sem að gestirnir náðu að minnka muninn niður í 8 stig. Lengra komust þeir hinsvegar ekki þrátt fyrir ágætis baráttu. Hjá Keflavík var Thomas Sanders þeirra langbesti maður og Ingi Þór þjálfari Snæfells hreinlega spurði eftir leik "Hvað er þessi maður að gera hérna?" En miðað þá frammistöðu sem hann sýndi í gær er hann í klassa fyrir ofan þessa deild og enn og aftur hefur Keflvíkingurinn og "Kana reddarinn" Tómas Tómasson galdrað fram "Súper kana" fyrir þá Keflvíkinga.
Hjá gestunum var fátt um fína drætti en Nonni Mæju barðist vel í fjarveru Amaroso en Keflvíkingar einfaldlega að spila glimmrandi leik og hefðu fá lið getað gert neitt við þessu.
Heildarskor:
Keflavík: Thomas Sanders 30/5 stolnir, Hörður Axel Vilhjálmsson 17/5 fráköst/11 stoðsendingar/5 stolnir, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16/7 fráköst/4 varin skot, Þröstur Leó Jóhannsson 16/9 fráköst, Jón Nordal Hafsteinsson 11/6 fráköst, Gunnar Einarsson 9/5 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 6, Almar Stefán Guðbrandsson 5/4 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 2, Kristján Tómasson 0, Magnús Þór Gunnarsson 0/7 fráköst/6 stoðsendingar, Hafliði Már Brynjarsson 0.
Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 28/13 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 20/7 fráköst, Sean Burton 15/7 fráköst/7 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 7, Atli Rafn Hreinsson 7/4 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 5/4 fráköst, Egill Egilsson 3, Daníel A. Kazmi 2, Kristján Andrésson 2, Guðni Sumarliðason 0, Gunnlaugur Smárason 0, Ryan Amaroso 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kr. Hreiðarsson
Mynd og umfjöllun: SBS




