Meistaraefnin úr Grindavík mættu á Jakann í kvöld og sýndu Ísfirðingum hvers vegna þeir tróna á toppnum. KFÍ er með verulega endurnýjaða liðskipan og fengu heimamenn að sjá tvo nýja leikmenn í fyrsta sinn, þá Marko Milicevic og Richard McNutt. Lið gestanna var líka breytt frá síðasta leik liðanna í bikarkeppninni, því bandarískur leikstjórnandi þeirra hefur fundið sér grænni gresjur og arftaki hans er ennþá ófundinn. Talsverð spenna því í loftinu og væntingar stuðningsmanna KFÍ miklar sem endranær.
Leikurinn var í jafnvægi framan af og ekki hægt að segja annað en að varnarleikurinn hafi verið sóknnni yfirsterkari, enda stigaskor liðanna eftir því. UMFG leiddi leikinn eftir fyrsta leikhluta 11-17 en KFÍ náði að snúa honum sér í vil í næsta leikhluta. Barátta þeirra var þarna mjög góð og greinilegt að leikmenn KFÍ geta spilað vörn á góðum degi. Þegar rúm mínúta var til hálfleiks náðu KFÍ góðri forystu 38-29 með góðum leikkafla. Grindvíkingar réttu hlut sinn með fjórum stigum fyrir leikhlé og staðan í hálfleik því 38-33. Vafalaust geta Ísfirðingar nagað sig í handarbökin yfir því að hafa þarna misst tækifæri til þess að herða tök sín all verulega á leiknum.
Í þriðja leikhluta varð algjör viðsnúningur og áttu Grindvíkingar hann alveg skuldlausan, skoruðu 19 stig á móti 9 stigum KFÍ. Staðan var því orðin talsvert tvísýnni fyrir heimamenn þegar síðasti leikhluti hófst, eða 47-52. Þarna virtist KFÍ liðið missa trúnna á sér eða einbeitinguna, talsvert bar á einleik og tilþrifum á köflum sem eiga líklega lítið skylt við liðsíþrótt. Góðu fréttirnar fyrir Ísfirðinga er að þetta á að vera auðvelt að leiðrétta fyrir næsta leik og gleðin í öflugum varnarleik er til staðar. Þegar KFÍ missti allan vind úr seglum sínum, sýndu Grindvíkingar einmitt hvers þeir eru megnugir og kláruðu leikinn af öryggi þrátt fyrir fjörkippi gestgjafanna. Nokkra athygli vakti léleg vítanýting beggja liða, UMFG með 20/29 (69%) og KFÍ með 13/23 (57%). Vítaskot verða líklega á matseðlinum hjá báðum liðum í vikunni.
Dómararnir höfðu í mörg horn að líta, enda talsverður hiti í leikmönnum, þjálfurum og áhorfendum. Til marks um það voru dæmdar 3 tæknivillur og talsvert var um að leikmenn og dómarar þyrftu að halda málþing inni á vellinum, sem gerir leikinn yfirleitt ekki áferðarfallegri á að horfa.

(Klesst´ann)
Bestur í liði UMFG var Ryan Pettinella með 19 stig og 4 fráköst. Þeir Ómar Örn Sævarsson (9 fráköst), Páll Axel (16 stig og 4 fráköst), Ólafur Ólafsson (9 stig og 80% skotnýtingu) voru ekki langt undan í jöfnu liði Grindavíkur. Helgi Jónas sýndi góða takta og setti niður mikilvæg vítaskot.
Marko Milicevic var öflugur í liði KFÍ, setti 16 stig og tók 5 fráköst. Craig var mjög traustur með 13 stig og grimmur í vörninni.
Dómarar: Halldór Geir Jensson og Björgvin Rúnarsson.
Umfjöllun og ljósmyndir: Helgi Sigmundsson




