spot_img
HomeFréttirEinn sigur og tveir tapleikir hjá Vésteini á nýja árinu

Einn sigur og tveir tapleikir hjá Vésteini á nýja árinu

 
Vésteinn Sveinsson og félagar í Marshalltown Community College byrja þokkalega á nýja árinu í bandaríska háskólaboltanum. Liðið hefur þegar leikið þrjá leiki, náð í einn sigur og tapað tveimur. Nú síðast mætti liðið Iowa Western Community College og tapaði Marshalltown naumlega 79-71 á útivelli.
,,Við vorum að spila okkar fyrsta leik í "conference" sem er riðillinn okkar. Mjög sterkur riðill. Við spiluðum við Iowa Western Community College á þeirra heimavelli. Við töpuðum með 8 stigum, þrátt fyrir að þeir fráköstuðu miklu betur en við, við töpuðum boltanum 19 sinnum og hittum mjög illa af vítalínunni. Samt sem áður áttum við séns á að vinna leikinn. Það má segja að þeir hafi verið stærri en við og þeir tóku mikið af sóknarfráköstum og voru að skora úr því,” sagði Vésteinn við Karfan.is en Marshalltown leikur í D2 deildinni í háskólaboltanum.
Leikir Marshalltown á nýja árinu:
 
5. janúar 2011
Tapleikur á heimvelli 85-93
Vésteinn skoraði 5 stig og var með 3 stoðsendingar í leiknum.
 
8. janúar 2011
Sigurleikur á útivelli 52-77
Vésteinn skoraði 2 stig og tók 3 fráköst í leiknum.
 
15. janúar 2011
Tapleikur á útivelli 79-71
Vésteinn skoraði 2 stig í leiknum en fékk það vandasama hlutverk að hafa gætur á Montez Blair, stigahæsta leikmanni Iowa Western og hélt honum í 4 stigum.
 
Fréttir
- Auglýsing -